Höfundurinn
Hjalti Halldórsson
Um höfundinn Hjalta Halldórsson
Það var árið 2017 sem fyrsta bók Hjalta, Af hverju ég? kom út og eru þær orðnar fjölmargar síðan og fjölgar enn. Skapandi umhverfi skólans er endalaus uppspretta hugmynda og hafa bækurnar hlotið frábærar viðtökur lesenda. Sumar þeirra eru innblásnar af Íslendingasögunum enda Hjalti með alvarlegt miðaldablæti.
Umsagnir
,,Ofurhetjan er saga sem skilur töluvert eftir sig í huga lesandans og getur vakið þarfa umræðu um erfið mál. Óhætt er að mæla með henni fyrir eldri börn og unglinga."
,,Þrátt fyrir að viðfangsefnin séu þung er sagan uppfull af húmor og textinn lipur og skemmtilegur."
⭐ ⭐ ⭐ ⭐
17. desember 2020
" Bókin er hin fínasta skemmtun og tilvalin í jólapakkann fyrir unga lestrarhesta."
Morgunblaðið↗
⭐ ⭐ ⭐ 1/2
23. desember 2019
"Þessi léttleiki gerir mikið fyrir framvindu sögunnar, sem einnig er spennandi, og sögur af börnum og fullorðnum og samskiptum þeirra gera Drauminn að bráðskemmtilegri barnabók."
Morgunblaðið↗
⭐ ⭐ ⭐ 1/2
14. desember 2018
Barnabækur byggðar á Íslendingasögunum
Af hverju ég?
Byggð á Egils sögu Skallagrímssonar
Bókin segir frá Agli, ungum dreng sem elst upp í Borgarnesi. Hann á ekki sjö dagana sæla þar sem hann á það til að lenda í vandræðum, eða veseni eins og hann kallar það sjálfur. Sjálfur vill hann þó meina að árekstrar hans við skólafélaga og fjölskyldumeðlimi séu alls ekki sér að kenna. Þvert á móti sé hann betur gefinn en flestir samferðamenn sínir en þrátt fyrir það lendir hann fyrir sakir óheppni sinnar og ósanngirni annarra í veseni.
Blaðsíður: 124
Hljóðbók: 2 klst
Höfundur: Hjalti Halldórsson
Flokkur: Barnabækur
Útgáfuár: 2017
Námsefni fylgir með bókinni!
Draumurinn
Byggð á Grettis sögu
Draumurinn segir frá afdrifaríku atviki sem setur líf tilvonandi knattspyrnuhetju á annan endann, enda á það sér stað viku áður en Íslandsmótið í 4. flokki hófst. Á daginn kemur að þó að refsingin virtist í fyrstu alveg hræðileg reynist hún síðan vera það besta sem komið gat fyrir.
Blaðsíður: 125
Hljóðbók: 2 klst 14 mín
Höfundur: Hjalti Halldórsson
Flokkur: Barnabækur
Útgáfuár: 2018
Ys og þys út af ÖLLU?
Byggð á Laxdælu
Þrenningin Guðrún, Kjartan og Bolli eru á leiðinni í síðasta skólaferðalagið fyrir unglingadeildina. ALLT skiptir máli. Þau ætla ÖLL að fá ALLT út úr þessari ferð. En áður en þau eru einu sinni komin á staðinn fara ALLAR áætlanir út um þúfur. Fyrr en varir snýst ÖLL ferðin um stríð! Ys og þys út af ÖLLU! er bráðsfjörug saga um vináttu, misskilning, hrekki, svik, hefnd … og svolítið um ástina.
Blaðsíður: 125
Hljóðbók: 2 klst 7 mín
Höfundur: Hjalti Halldórsson
Flokkur: Barnabækur
Útgáfuár: 2019
Námsefni fylgir með bókinni!
Ofurhetjan
Byggð á Gunnlaugs sögu Ormstungu
Gulla dreymir um að verða eitthvað meira en ósköp venjulegur drengur. Með hjálp Helgu vinkonu sinnar uppgötvar hann óvænt áður óþekktan hæfileika sem breytir lífi hans. Hann setur á sig grímuna og verður Ormstunga, ofurhetja sem berst gegn eineltisseggjum.
Hverju er Gulli tilbúinn til að fórna til að ráða að niðurlögum erkióvinarins? Ofurhetjan er æsispennandi saga um ALVÖRU ofurhetju.
Blaðsíður: 172
Hljóðbók: 2 klst 44 mín
Höfundur: Hjalti Halldórsson
Flokkur: Ungmennabækur
Útgáfuár: 2020
Eldurinn
Byggð á Njálu
Hefur þig alltaf langað að leika lausum hala í skólanum eftir lokun? Fara í feluleik, setja teiknibólu í kennarastólinn, aftengja skólabjölluna.
Halla, Hildigunnur, Kári og Skarpi eru ein í skólanum, hvert með sína ástæðu. Það stóð samt aldrei til að kveikja í … eða hvað?
Blaðsíður: 142
Hljóðbók: 2 klst 40 mín
Höfundur: Hjalti Halldórsson
Flokkur: Ungmennabók
Útgáfuár: 2021
Aðrar bækur Hjalta - barnabækur í Ljósaseríunni
Veran í vatninu
Dísa fer út á vatn með Dreng vini sínum og Jónsa frænda. Tilgangurinn er að athuga hvers vegna vatnið er orðið grænt en Dísa er í sínum eigin rannsóknarleiðangri. Hún er sannfærð um að í vatninu búi geimvera. Verst er þó að enginn trúir henni og hún verður því að taka málið í eigin hendur.
Við sögu koma líka draugar og kleinur, já og mýflugur. Mjög mikið af mýflugum!
Dísa fer út á vatn með Dreng vini sínum og Jónsa frænda. Tilgangurinn er að athuga hvers vegna vatnið er orðið grænt en Dísa er í sínum eigin rannsóknarleiðangri. Hún er sannfærð um að í vatninu búi geimvera. Verst er þó að enginn trúir henni og hún verður því að taka málið í eigin hendur.
Við sögu koma líka draugar og kleinur, já og mýflugur. Mjög mikið af mýflugum!
Höfundur: Hjalti Halldórsson
Tungumál: Íslenska
Flokkur: Barnabækur
Sería: Ljósaserían
Útgefandi: Bókabeitan
Bókarsnið: Harðspjalda
Útgáfuár: 2021
ISBN: 9789935499950
Bókarsnið: Hljóðbók
Lesari: Andrea Ösp Karlsdóttir
Lengd: 58 mínútur
Útgáfudagur: 22. september 2021
ISBN: 9789935519030
Bókarsnið: Rafbók
Útgáfudagur: 22. september 2021
ISBN: 9789935519375
Græna geimveran
Dísa er á leið í Mývatnssveit til ömmu og afa. Þar ætti hún að vera óhult fyrir geimverum sem eru alltaf að reyna að ná valdi á fólki.
Það var hins vegar eins gott að hún tók með sér álklæddu derhúfuna, vatnsbyssuna og stækkunarglerið – og kynntist Dreng – því það er eitthvað stórundarlegt á seyði í sveitinni!
Höfundur: Hjalti Halldórsson
Tungumál: Íslenska
Flokkur: Barnabækur
Sería: Ljósaserían
Útgefandi: Bókabeitan
Bókarsnið: Harðspjalda
Blaðsíðufjöldi: 75
Útgáfuár: 2020
ISBN: 9789935499950
Bókarsnið: Hljóðbók
Lesari: Lára Jóhanna Jónsdóttir
Lengd: 58 mínútur
Útgáfudagur: 25. desember 2020
ISBN: 9789935499240
Bókarsnið: Rafbók
Útgáfudagur: 25. desember 2020
ISBN: 9789935499233