Af hverju ég?

Byggð á Egils sögu Skallagrímssonar

Bókin segir frá Agli, ungum dreng sem elst upp í Borgarnesi. Hann á ekki sjö dagana sæla þar sem hann á það til að lenda í vandræðum, eða veseni eins og hann kallar það sjálfur. Sjálfur vill hann þó meina að árekstrar hans við skólafélaga og fjölskyldumeðlimi séu alls ekki sér að kenna. Þvert á móti sé hann betur gefinn en flestir samferðamenn sínir en þrátt fyrir það lendir hann fyrir sakir óheppni sinnar og ósanngirni annarra í veseni.


Höfundur: Hjalti Halldórsson
Tungumál: Íslenska
Flokkur: Barnabækur
Útgefandi:
Bókabeitan

Bókarsnið: Harðspjalda

Blaðsíðufjöldi: 124
ISBN: 9789935481405

Bókarsnið: Hljóðbók

Lesari: Hjalti Halldórsson
Lengd: 2 kukkustundir
Útgáfudagur: 25. desember 2020
ISBN: 9789935519504

Bókarsnið: Rafbók

Útgáfudagur: 25. desember 2020
ISBN: 9789935481412



Námsefni fylgir frítt með barnabókin Af hverju ég? sem byggð á Egils sögu

Til að ýta undir áhuga og hjálpa fólki enn frekar að njóta Íslendingasagnanna hefur Hjalti Halldórsson búið til námsefni fyrir Íslendingasögurnar og barnabækurnar sem hann hefur samið.